Allir hvolparnir farnir að heiman

Nú sitjum við hér í rólegheitunum í Heiðarbænum, búin að afhenda alla hvolpana. Við vorum ótrúlega heppin, okkur líst svo vel á alla nýju hvolpaeigendurna.  Við höfum fengið fréttir af honum Loga, hann hefur fengið nafnið Caffon og hann er alsæll hjá nýju fjölskyldunni. Við bíðum nú spennt eftir að heyra af hinum hvolpunum. Indira og Hnappur liggja eins og skotin, staðráðin í að hvíla sig vel á meðan enginn hvolpur er í húsinu...  Kveðja Anna og Haukur

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Til hamingju !   Skotta mín átti sjö stykki -og þó að að það væri yndislegur tími var hann nú ekki beint auðveldur.   Síðasti hvolpurinn fór ca. sex mánaða gamall og þó að rólegt væri í húsinu eftir það -og Skotta fegin- var nú samt soldið tómlegt líka...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 24.12.2008 kl. 01:42

2 Smámynd: Anna Birna Snæbjörnsdóttir

Takk fyrir kveðjuna Hildur, ég skil ykkur Skottu mjög vel við finnum svolítið fyrir tómleikanum núna líka, en það yljar okkur að fá fréttir af því hversu vel gengur með hvolpana á nýju heimilunum, fá myndir og svoleiðis...Kveðja Anna Birna

Anna Birna Snæbjörnsdóttir, 27.12.2008 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband